STÖRF TENGILIÐS NOTENDA
03.02.2011
Upplestur á frétt 
Eins og við sögðum frá þann 14. desember síðastliðinn þá tók Kári Auðar Svansson til starfa sem tengiliður notenda vegna yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar.
Markmiðið er að efla samráð við notendur þjónustu fyrir fatlað fólk í Reykjavík á þessum breytingatímum og tryggja að rödd þeirra heyrist svo hægt sé að taka mið af þeirra sýn á verkefnið. Tengiliður notenda tekur við erindum sem varða tilfærsluna og upplýsir verkefnisstjóra um ábendingar sem berast.
Nú þegar hefur Kári heimsóttfjórtán sambýli og áfangastaði þar sem hann hefur rætt við íbúa um yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til Reykjavíkurborgar ogbeðið fólk að svara stöðluðum spurningalista.
Með spurningalistanum er ætlunin að fá fram sýn á líðan fólks þegar það hugsar um yfirfærsluna. Sömuleiðis hvort fólk viti til hvaða þjónustumiðstöðvar það eigi að leita núna eftir yfirfærsluna og hvort fólk geti sjálft leitað til þjónustumiðstöðvar gerist þess þörf. Að lokum eru viðmælendur beðnir um að koma spurningum og ábendingum á framfæri.
Kári Auðar hefur aðsetur á Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis og er vinnutími hans frá kl. 9:00-13:00. Netfang Kára er: kari.audar.svansson@reykjavik.is.