Sendiherrar um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
09.05.2011
Upplestur á frétt 
Þroskahjálp hefur verið með námskeið fyrir fatlað fólk þar sem markmiðið er að þjálfa fatlað fólk í að vera sendiherrar vegna samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Tilgangurinn með námskeiðinu er veita jafningjafræðslu um réttindi fatlaðs fólks. Ætlunin er að þau kynni samninginn öðru fólki með þroskahömlun og mun hópurinn nú í maí og fram í júní skipta sér niður í heimsóknir á sambýli og ýmsa vinnustaði.
Sendiherrarnir eru þegar farnir að láta að sér kveða og á dögunum heimsóttu þau innanríkisráðherra, Ögmund Jónasson og kynntu verkefnið fyrir honum. Sendiherrarnir eru: Gísli Björnsson, Ingibjörg Rakel Bragadóttir, Ína Valsdóttir, María Hreiðarsdóttir, Skúli Steinar Pétursson, Þórey Rut Jóhannesdóttir og Þorvarður Karl Þorvarðarson.
Meira á vef stjórnarráðsins>>>