17.10.2011
Upplestur á frétt
Á kynningunni var farið yfir helstu breytingar í lögum um málefni fatlaðs fólks sem tóku gildi þann 1. janúar 2011, nýja reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu, ný lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk og reglugerð um trúnaðarmenn fatlaðs fólks. Lára Björnsdóttir sérfræðingur í velferðarráðuneyti og fyrrum félagsmálastjóri Reykjavíkurborgar kynnti lög og reglugerðir í þjónustu við fatlað fólk.
María Rúnarsdóttir, verkefnisstjóri yfirfærslu um þjónustu við fatlað fólk frá ríki til Reykjavíkurborgar fjallaði um hvaða áhrif ný lög og reglugerðir hafa á skipulag og þróun þjónustu. Í lokin voru umræður um hvaða þýðingu breytingar á lögum og reglugerðum hafa í framkvæmd þjónustunnar.
Hér eru gögn frá námskeiðinu:
Kynningarglærur Láru Björnsdóttur
Glærur Maríu Rúnarsdóttur
Lög um málefni fatlaðs fólks nr. 59/1992 með síðari breytingum: http://www.althingi.is/dba-bin/prentaloguti.pl?lnr=1992059&utg=139a&pdf=PDF
Nefndarálit um lög um málefni fatlaðs fólks: http://www.althing.is/altext/139/s/0550.html
Lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk: http://www.althingi.is/altext/139/s/pdf/1806.pdf
Nefndarálit um lög um réttindagæslu fyrir fatlað fólk: http://www.althingi.is/altext/139/s/1623.html
Reglugerð um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu nr. 1054/2010: http://stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=512e8306-8da4-4a6d-9e56-5785fca65d9f
Reglugerð um trúnaðarmenn nr. 172/2011: http://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=4d4100b3-18b3-4f44-a7bd-aa1b7216ad63