TILBOÐ MÁNAÐARINS

Kæri Menningarkortshafi

-VINAVIKA Á ÁSMUNDARSAFNI
- 10 KORT Á VERÐI 5 Í LJÓSMYNDASAFNI REYKJAVÍKUR

Efnt verður til sérstakrar vinaviku fyrir handhafa Menningarkortsins dagana 21. - 28. maí, en þá geta kortaeigendur boðið með sér einum gesti á sýninguna í Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn

 

12.- 18. maí er hægt að kaupa 10 kort á verði 5 í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

 

Endurnýjun Menningarkorts

Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 1.000 króna afslátt ef kortið er endurnýjað innan mánaðar frá því það rann út.

Handhafar rauðs Menningarkorts Listasafns Reykjavíkur  (Hafnarhús, Kjarvalsstaðir og Ásmundasafn) og græna Menningarkorts Minjasafns Reykjavíkur  (Árbæjarsafn og Landnámssýning)  geta líka nýtt sér þetta tilboð ef þeir vilja skipta yfir í  blátt Menningarkort Reykjavíkur.

Menningarkortið bláa er á sama verði og á síðasta ári eða 5.000  krónur - en bara 4.000 fyrir þig ef þú nýtir þér tilboðið . Menningarkortið er ekki lengi að borga sig því bókasafnsskírteini kostar nú kr. 1.600 og ein heimsókn á Listasafn Reykjavíkur eða Minjasafn kr. 1.100.

Hægt er að endurnýja kortið á  öllum þessum sölustöðum :

Listasafn Reykjavíkur: Hafnarhús, Kjarvalsstaðir, Ásmundarsafn

Minjasafn Reykjavíkur: Árbæjarsafn, Landnámssýning              

Borgarbókasafn Reykjavíkur: Aðalsafn, Kringlusafn, Sólheimasafn, Gerðubergssafn, Foldasafn og Ársafn

 

Jafnframt er unnt að hringja í síma 590-1200 og greiða með kreditkorti.

Þá er líka hægt að millifæra úr heimabanka: á reikning 0101-26-54729 kennitala 470987-1979. Vinsamlegast setjið skýringuna „Menningarkort"  ásamt kennitölu korthafa staðfestingu á netfangið heidrun.adalsteinsdottir@reykjavik.is

 

MENNINGARKORT REYKJAVÍKUR – LISTILEGA EINFALT

Menningarkort Reykjavíkur er ný og ódýr leið til að njóta menningar borgarinnar. Menningarkortið gildir í Listasafn Reykjavíkur (Hafnarhús, Kjarvalsstaði og Ásmundarsafn), Minjasafn Reykjavíkur (Árbæjarsafn og Landnámssýningu) og fá handhafar þess einnig bókasafnskort í Borgarbókasafn Reykjavíkur.
 

Menningarkortið gildir í ár frá virkjun kortsins, en auk þess að gilda á allar sýningar og viðburði á vegum safnanna, veitir það 10% afslátt á veitingastaði safnanna, safnverslanir og fleira. Verði kortsins er haldið í algjöru lágmarki, en það kostar aðeins kr. 5.000,-
Athugið að frítt er fyrir börn upp að átján ára aldri og eldri borgarar þurfa hvorki að greiða fyrir aðgang að ofangreindum söfnum né fyrir bókasafnskort.

BLÁTT, RAUTT OG GRÆNT KORT
BLÁTT MENNINGARKORT
kostar 5.000 kr. og gildir sem árskort í Listasafn Reykjavíkur, Minjasafn Reykjavíkur og fá handhafar þess einnig bókasafnskort í Borgarbókasafn Reykjavíkur. Kortið gildir einnig sem fríðindakort m.a. í safnverslanir og veitingasölur innan menningarstofnana Reykjavíkurborgar.
RAUTT MENNINGARKORT kostar 3.000 kr. og gildir sem árskort í Listasafn Reykjavíkur. Kortið gildir einnig sem fríðindakort í Listasafnið.
GRÆNT MENNINGARKORT kostar 3.000 kr. og gildir sem árskort í Minjasafn Reykjavíkur. Kortið gildir einnig sem fríðindakort í Minjasafnið.

Kortið er virkjað við afhendingu en gjafakort eru virkjuð við fyrstu notkun.
Hér má nálgast lista yfir sölustaði.

Gríðarlegur sparnaður hlýst af Menningarkortunum, en samkvæmt nýjum samþykktum borgarráðs er aðgangseyrir í hvert og eitt safnhús Listasafns Reykjavíkur frá og með 1. janúar 2012 kr. 1.100,- Sama gjaldtaka verður hjá Minjasafni Reykjavíkur, kr. 1.100 á sýningar Árbæjarsafns og sama aðgönguverð í Landnámssýninguna. Verð á bókasafnskorti er kr. 1.600,-

Menningarkortið er hagkvæm leið fyrir alla til að sækja sér metnaðarfulla og innihaldsríka upplifun allan ársins hring.

 

FYRIRTÆKJAPANTANIR

Fyrirtæki geta pantað menningarkort með því að senda tölvupóst á menningarkort@reykjavik.is eða hringt í síma 590-1508. Í tölvupóstinum þarf að koma fram fjöldi korta, tengiliður, kennitala og heimilisfang. Kortin fást í fallegri gjafaöskju sem verða send til viðkomandi fyrirtæki um leið og búið er að ganga frá pöntuninni.




 


Splunkunýtt leikrit: Trans

26.05.2012 - 26.05.2012 

Strawberries
Splunkunýtt leikrit: Trans
Splunkunýtt leikrit: Viskí tangó

26.05.2012 - 26.05.2012 

Fornbókabúðin Bókin
Splunkunýtt leikrit: Viskí tangó
Splunkunýtt leikrit: Tókstu eftir himninum í morgun?

26.05.2012 - 26.05.2012 

Laugar Spa
Splunkunýtt leikrit: Tókstu eftir himninum í morgun?
Splunkunýtt leikrit: Opið hús

26.05.2012 - 26.05.2012 

Hverfisgata 52
Splunkunýtt leikrit: Opið hús
Art In Translation

24.05.2012 - 26.05.2012 

Norræna húsið
Art In Translation
Splunkunýtt leikrit: Tókstu eftir himninum í morgun?

26.05.2012 - 26.05.2012 

Laugar Spa
Splunkunýtt leikrit: Tókstu eftir himninum í morgun?


Menningarkort Reykjavíkur (blátt kort)
Menningarkort Reykjavíkur
5.000 kr.


Menningarkort Listasafns Reykjavíkur (rautt kort)
Menningarkort Listasafns Reykjavíkur - 3.000 kr.


Menningarkort Minjasafns Reykjavíkur (grænt kort)
Menningarkort Minjasafns Reykjavíkur - 3.000 kr.





Facebook




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit