Um Framkvæmdasjána
|
Í Framkvæmdasjá er að finna upplýsingar um nýframkvæmdir og stærri viðhaldsverkefni Reykjavíkurborgar. Á korti af Reykjavík er vísað á upplýsingasíðu um hvert verkefni og einnig er listi yfir verkefni sem ekki hafa verið staðsett.
>>> Opna kort.
>>> Skoða lista yfir óstaðsettar framkvæmdir.
Áhersla er lögð á að viðhalda upplýsingum í Framkvæmdasjá með reglubundnum hætti og koma nýjum verkefnum á vefinn eins skjótt og mögulegt er. Hluta verkefna er einkum í upphafi verkferlis ekki hægt að staðsetja á korti, en þau eru þá gerð aðgengileg sem listi á vefsíðu. Verkefni í Framkvæmdasjá byggja á samþykktri fjárhagsáætlun hvers árs.
Gerður er fyrirvari um að einstök verkefni í Framkvæmdasjá geta tekið breytingum við úrvinnslu þeirra og breyttar áherslur.
|
|
Framkvæmdasjá er fyrst í stað eingöngu hugsuð til kynningar á verkefnum sem sviðið sér um eða tengist með ákveðnum hætti. Framkvæmdasjáin sem fór á vefinn í janúar 2011 verður þróuð í takt við notkun hennar og uppi eru hugmyndir að skoða möguleika á upplýsingagjöf um aðrar framkvæmdir en sviðsins, einkum ef þær tengjast afnotum af borgarlandi, en Framkvæmda- og eignasvið gefur út heimildir til framkvæmda eða annarra afnota á borgarlandi.
Ábendingar vegna Framkvæmdasjárinnar eru vel þegnar og skulu þær sendast til upplýsingafulltrúa Framkvæmda- og eignasviðs: Jon.halldor.jonassson@reykjavik.is eða framkvaemdasja@reykjavik.is
Vefsíða yfirfarin 10. ágúst 2011