Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Rannsóknir og stefnumótun


Arkitektastofan Gláma-Kím - Gagn og gaman úti
Arkitektastofan Gláma-Kím hlaut styrk fyrir rannsóknar- og þróunarverkefni sitt, Gagn og gaman ‒ úti. Verkefnið fólst í að athuga hvernig staðið væri að leikjamálefnum barna í Reykjavík og að bera það saman við fyrirkomulag í nokkrum nágrannalöndum Íslands. Markmiðið var að gera borgaryfirvöldum betur kleift að móta heildstæða leikjastefnu og að bæta aðstöðu barna til frjálsra leikja í nánasta umhverfi sínu.

Rannsóknir og greining - Ungt fólk utan skóla
Rannsóknir og greining hlutu styrk til að standa straum af rannsókn sinni, Ungt fólk utan skóla. Í rannsókninni voru kannaðir hagir og líðan ungmenna á aldrinum 16-20 ára sem voru skráð í nám við framhaldsskóla. Náði rannsóknin til allra ungmenna á landinu og voru niðurstöður hennar birtar í skýrslu sem var send ýmsum aðilum vítt og breitt um samfélagið. Var hún m.a. send öllum tengiliðum Rannsókna og greiningar sem koma að málefnum unga fólksins, en þar á meðal voru skólastjórnendur, starfsfólk félagasamtaka, opinberar stofnanir og sveitarfélög. Auk skýrslunnar hafa Rannsóknir og greining staðið fyrir fjölmörgum kynningum á niðurstöðum rannsóknarinnar og veitir miðstöðin auk þess afnot af hrágögnum rannsóknarinnar endurgjaldslaust.

Þróunarfélag Vesturbæjar - Heilsuefling ungmenna í Vesturbæ Reykjavíkur
Þróunarfélag Vesturbæjar hlaut styrk til verkefnisins Heilsuefling ungmenna í Vesturbæ Reykjavíkur. Markmið verkefnisins var að stuðla að bættri líðan barna í Vesturbænum, aukinni íþróttaiðkun og öflugri samvinnu milli grunnskóla og íþróttafélaga í Vesturbænum. Knattspyrnufélag Reykjavíkur stýrði verkefninu en með því vildi KR tengjast betur skólunum, frístundaheimilunum og tómstundaskólunum í Vesturbænum.