Málefni eldri borgara
Laugardalur og Háaleiti er fjölmennasta þjónustusvæðið í borginni, þar eru rúmlega 29.000 íbúar eða 26% Reykvíkinga. Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis veitir íbúum hverfanna alhliða þjónustu og upplýsingagjöf. Að auki sinna starfsmenn sérstaklega tveimur þekkingarstöðvarverkefnum undir kjörorðinu „samfélag fyrir alla”. Full þátttaka í samfélaginu eru mannréttindi sem eiga jafnt við um alla, óháð færni og aldri. Á Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis eru málefni fatlaðra og málefni eldri borgara skilgreind sem þekkingarstöðvarverkefni.
Markmiðið með þekkingarstöðvarverkefnum er að viðhalda og þróa sérfræðiþekkingu í málaflokkunum og miðla til samstarfsaðila. Ennfremur að vera tengiliður við aðrar stofnanir og hagsmunaaðila.
Hvers vegna þekkingarstöð um málefni aldraðra?
Við val á þekkingarstöðvarverkefnum var litið til íbúasamsetningar hverfanna en í Laugardal og Háaleiti er hátt hlutfall eldri borgara. Íbúar í Laugardal og Háaleiti, 67 ára og eldri eru 19% af heildaríbúafjöldanum í hverfunum. Einnig býr í hverfunum tveimur yfir 40% allra Reykvíkinga sem eru 67 ára eða eldri. Þessi íbúasamsetning endurspeglast í veittri þjónustu hjá borginni en á síðasta ári var meðal annars yfir 40% heimaþjónustu í borginni veitt á þjónustusvæðinu.
Upplýsingar um fræðslu má finna hér