Vesturbær

Grunnskólar og frístundaheimili
Lagt er til að haustið 2011 verði skóla- og frístundastarf 6-9 ára barna samþætt í einu þjónustuhverfi og jafnframt því undirbúin sameining yfirstjórnar skóla og frístundastarfs í borginni allri.
Starfshópur um breytingar á skólastarfi í Vesturbæ
Lagt er til að Menntasviði verði falið að koma á samráði við stjórnendur og starfsmenn grunnskólanna í Vesturbæ auk skólaráða og foreldraráða (skólasamfélagið) og koma með tillögur að breytingum á skólastarfi í Vesturbæjar-, Mela-, Granda- og Hagaskóla. Markmiðið er að finna leiðir til að komast hjá því að byggja við þá skóla sem senn komast í húsnæðisþröng vegna nemendafjölgunar. Starfshópur taki til starfa strax og skili tillögum til borgarstjóra eigi síðar en 1. desember 2011.
Sjá stýrihóp um fyrirkomulag skólastarfs í Vesturbæ
Leikskólarnir Dvergasteinn og Drafnarborg verði sameinaðir
Leikskólarnir Dvergasteinn og Drafnarborg voru að tillögu hópsins sameinaðir undir eina yfirstjórn 1. júlí 2011. 100 börn eru í sameinuðum leikskóla. Leikskólastjóri er Elín Mjöll Jónasdóttir.
Vesturbær - Skólahverfi
Meira um skóla og skólahverfi
Leikskólar eftir hverfum
Frístundaheimili borgarinnar