Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English


Fréttir og viðburðir

Staða mála milli ára

08.02.2012

Upplestur á frétt 

Hjá Reykjavíkurborg starfa rúmlega 8.000 manns og er borgin einn af stærstu vinnustöðum landsins. Reksturinn er umfangsmikill og hefur talsverð umhverfisáhrif, bæði vegna athafna starfsmanna og vegna þeirrar þjónustu sem borgin veitir. Rekstri borgarinnar fylgir losun gróðurhúsalofttegunda, meðal annars frá bílum, meðhöndlun úrgangs og ýmsum verkframkvæmdum. Rekstrinum fylgir einnig rusl frá vinnustöðum, orku- og vatnsnotkun.

Staða mála hjá Reykjavíkurborg er sú að árið 2010 fór 63% úrgangs óflokkaður til urðunar og 37% til endurvinnslu. Rafmagnsnotkun var 74.260 Mwh og um 100.000 lítrar af eldsneyti voru nýttir á bifreiðar borgarinnar. Sjá nánar hér.

Virk umhverfisstjórnun dregur úr þessum áhrifum enda er það eitt af meginmarkmiðum Grænna skrefa í rekstri Reykjavíkurborgar. Nefna má að dregið hefur úr rafmagnsnotkun í rekstri Reykjavíkurborgar, á árinu 2009 var notkunin 83.771 Mwh en 74.260 Mwh á árinu 2010.

Tenglar:

Staða mála

Markmið Grænna skrefa í rekstri Reykjavíkurborgar


Hvað er úrgangur?

Öll neysla veldur úrgangi en úrgangur er ekkert annað en afgangshráefni, eitthvað sem við getum ekki nýtt eða sem við kjósum að nota ekki.

> Fleiri heilræði <