17. júní - þjóðhátíðarskemmtun í Reykjavík

DagskráÞjóðhátíðFjallkonanMyndirFréttirEnglish17. júní


Dagskráratriði óskast

Auglýst er eftir skemmti- og sýningaratriðum fyrir þjóðhátíðarskemmtun í Reykjavík. Dagskráin fer fram í miðborg Reykjavíkur og stendur hún frá morgni til kvölds. Gert er ráð fyrir barna og fjölskylduskemmtunum á sviðum, tónleikum, leiktækjum og ýmsum sýningum og götuuppákomum.

Umsóknum um flutning atriða, uppákomur og viðburði á að skila í Hitt Húsið, Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík á eyðublöðum sem þar fást.

Eyðublöðin má einnig sækja hér
Umsókn
 
Umsóknarfrestur rennur út 10. maí 2012.
 
 
Athugið að í dálkinn Verðhugmynd á að rita heildarupphæð, þ.e. allan kostnað við atriðið, þ.á.m. höfundarréttargjöld, flutninga, tæknivinnu eigin tæknimanna, o.s.frv.  Fyrir skemmtiatriði er ekki greitt annað en það sem samið er um fyrirfram og gerður skriflegur samningur um.

Leikatriðum þarf að fylgja handrit eða atburðalýsing sem senda má á netfangið
17juni@hitthusid.is


Tónlistaratriðum þarf að fylgja listi yfir hljóðfæraskipun sem senda má á netfangið
17juni@hitthusid.is