Dagskrá 17. júní 2011 í Reykjavík
Með fyrirvara um breytingar.
Kl. 09:55
Samhljómur kirkjuklukkna í Reykjavík
Kl. 10:15
Guðsþjónusta í Dómkirkjunni
Kl. 11:10
Athöfn á Austurvelli
Hátíðardagskrá á vegum Alþingis og Forsætisráðuneytisins.
Kl. 12:00
Skrúðganga frá Austurvelli í kirkjugarðinn við Suðurgötu.
Forseti borgarstjórnar, Elsa Hrafnhildur Yeoman, leggur blómsveig frá Reykvíkingum á leiði Jóns Sigurðssonar. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur, stjórnandi Lárus Grímsson.
Kl. 13:00-17:00
Hljómskálagarður
Skátaland verður með leiktæki, þrautabrautir og fleira. Ókeypis er í leiktækin í garðinum.
14:00 Tóti trúður
14:25 Glímusýning
14:50 Fimleikadeild Ármanns
15:00 Krúserbandið
15:15 Kínversk kung fu-sýning
15:40 Skylmingafélag Reykjavíkur
16:00 Fallhlífastökk
16:05 Aikido-sýning
16:30 Ju jutsu-sýning
Kl. 13:00-16:00
Akstur fornbíla og sýningar
Hópakstur Fornbílaklúbbsins og sýning við Arnarhól.
Hópakstur Krúsers og sýning á Skothúsvegi. Krúserbandið leikur kl. 15:00.
Kl. 13:30 og 14:30
Brúðubíllinn í Hallargarði
Ævintýri Lilla. Athugið breytta staðsetningu
Kl. 13:30-17:00
Barna- og fjölskylduskemmtun á Ingólfstorgi
Sirkus Íslands með götuleikhús og sirkusskóla
Sirkussýningar kl. 14:15, 15:30 og 16:30
Kl. 13:30-16:30
Sólskoðun á Lækjartorgi
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn
Kl. 13:40
Skrúðgöngur
Skrúðganga frá Hlemmi niður Laugaveg. Lúðrasveitin Svanur leikur og Götuleikhúsið tekur þátt
Skrúðganga frá Hagatorgi í Hljómskálagarð. Lúðrasveit verkalýðsins leikur
Kl. 14:00
Barna- og fjölskylduskemmtun á Arnarhóli
14:00 Eldfærin. Borgarleikhúsið
14:15 Ballið á Bessastöðum. Þjóðleikhúsið
14:30 Gosi. Klassíski listdansskólinn
14:40 Gýpugarnagaul. Möguleikhúsið
14:55 Draumurinn. Nemendafélag Verslunarskólans
15:05 Íþróttaálfurinn og Solla stirða úr Latabæ
15:25 Atriði frá Danslistarskóla JSB
15:35 Dansflokkurinn Rebel
15:45 Skókassasirkusinn
15:55 Bollywood-danssýning Yesmine Olsson
16:10 Breikdanshópur Natöshu. Kramhúsið
16:15 Þröstur Leó og Gói leika lausum hala
16:30 Vinir Sjonna
Kl. 14:00
Fjöltefli á Útitaflinu
Skákakademía Reykjavíkur stendur fyrir fjöltefli með Hjörvari Steini Grétarsyni landslismanni í skák
Kl. 14:00
Kraftakeppni við Ráðhúsið
Trukkadráttur í Vonarstræti í keppninni Sterkasti maður Íslands
Kl. 14:00-17:00
Uppákomur á Austurvelli
14:00 Dans- og hljóðverk eftir Raven og Blauba
14:15 Gjörningalistahópurinn Skarkali í samstarfi við Tyrfing Tyrfingsson kynnir Þjóðhildi, móður íslensku þjóðarinnar
14:40 Hásálfar flytja raftónlistarálfasögur og rímur
15:00 Langholtsdætur
15:15 Skuggamyndir frá Býsans
15:50 Sönglist
16:20 Opinn hljóðnemi. Komið með gítarinn eða undirleik á diski eða ipod og takið lagið
Kl. 14:00-17:00
Listhópar Hins Hússins og ýmis atriði
14:00 Götuleikhúsið sýnir á Skothúsveginum við tjörnina
15:00 UngSaga býður í ammæli Nonna Sig við Alþingishúsið. Kökur og kruðerí í boði
15:30 Hljómsveitin Snabbi leikur dansvæna raftónlist á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis
- Dansveitan sýnir verkið Brúðir Íslands sameinast í baráttu á svölum við Austurstrætið og við MR kl. 14:30
- Brogan og Ellen með innsetningu þar sem hversdagslegir hlutir eru teknir úr samhengi í vestanverðum Hljómskálagarðinum kl. 14-16
- Hljómsveitin Nói spilar frumsamda tónlist við Laugaveg 6 kl. 14:30 og við Bankastræti 2 kl. 16
- Hljómsveitin Of Monsters verður leikur fyrir gesti og gangandi í miðbænum
- Suburbistan-hópurinn málar veggmynd í Hjartagarðinum
- Hljóð-og sjónlistahópurinn bæði og verður með sýninguna „snúið útúr" í Kaffistofunni Nemendagallerí á Hverfisgötu 44. Skringileg þjóðhátíðargleði og ringulreið í boði
- Hirðteiknari Reykjavíkurborgar teiknar þjóðhátíðarhúllumhæið og sýnir myndirnar í glugga á horni Lækjargötu og Austurstrætis
- Listtvíeykið Pínulítið skárra verður með töfrandi uppákomur í miðbænum. Þau munu þefa uppi áhorfendur og sýna þeim listir sínar
- LÆK, Leiklistarstarf æskulýðsfélaga kirkjunnar sýnir hér og þar í miðbænum
- Lokun myndlistasýningunnar Ómenntaður eftir Guðfinn Ými í Gallerí Tukt í Hinu Húsinu kl. 14-17
- Bartónar, Karlakór Kaffibarsins verður með tónleikaröð á röltinu
Kl. 14:00-17.30
Opið hús í Alþingi
Opið hús í tilefni af 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar og 100 ára afmæli Háskóla Íslands
Kl. 14:30
Tónleikar í Ráðhúsi Reykjavíkur
14:30 Dúettinn Askja
15:00 Nína
15:30 Dægurflugurnar
15:50 Langholtsdætur
16:10 Jussanam og Árni Heiðar
Kl. 15:00
17. júnímót í siglingum
Siglingamót Brokeyjar á sundinu fyrir utan Sæbrautina
Kl. 16:00
Bænastund í Hallgrímskirkju
Bænastund fyrir Íslandi með þátttöku fjölmargra kristinna trúfélaga. Börnin velkomin.
Kl. 17:00
Dansleikur á Ingólfstorgi
Komið og dansið
Kl. 18-22
Tangókaffihús í Þjóðmenningarhúsinu
Hljómsveitinni Fimm í tangó, tangóhreyfimyndir og tangódans. Sjá nánar á www.tangoadventure.com
Kl. 19:30
Tónleikar á Arnarhóli
19:30 Murrk
19:45 Joe and the Dragon
19:55 Friðrik Dór
20:15 Postartica
20:30 Dikta
21:00 Bjartmar og Bergrisarnir
21:30 Valdimar
Kl. 20:00
Harmónikuball í Ráðhúsi
Léttsveit Harmónikufélags Reykjavíkur leikur fyrir dansi
Kl. 20:00
Tónleikar á Ingólfstorgi í samstarfi við Mammúng
20:00 Dagur Sigurðsson
20:10 Teitur Gissurarson
20:20 Kristmundur Axel
20:30 Haffi Haff
20:40 Bjartur Elí
20:50 Júlí Heiðar
21:10 Ingó
21:30 Mollý
21:40 Óskar Axel
Kl. 22:00
Dagskrárlok
Skipulagt hátíðasvæði er Kvosin þ.á.m. Austurvöllur, Kirkjustræti, Templarasund, Ingólfstorg, Arnarhóll, Tjarnargarður og Reykjavíkurhöfn. Umferð bifreiða er takmörkuð um þessi svæði og torgsala er óheimil án leyfis.
Umsjón með dagskrá þjóðhátíðar í Reykjavík hefur þjóðhátíðarnefnd á vegum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur en Hitt Húsið sér um framkvæmdina.
Týnd börn
Upplýsingar um týnd börn í stjórnstöðinni í Hinu Húsinu Pósthússtræti 3-5, sími 411 5500
Leigubílar
Vegna lokunar miðbæjarins fyrir bílaumferð eru hefðbundin stæði leigubíla lokuð en leigubílum verður búin aðstaða vestast á Bakkastæði við Kolaportið