Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Ábendingagátt vegna úttektar á málefnum OR

Opnuð hefur verið ábendingagátt í tengslum við úttektina á málefnum OR.

Úttektarnefnd sem mun fara yfir málefni Orkuveitu Reykjavíkur hefur hafið störf en nefndin á að gera óháða úttekt á þeim þáttum sem leiddu til núverandi fjárhagsstöðu fyrirtækisins.

Allir þeir sem hafa upplýsingar sem gætu komið að gagni við gerð úttektarinnar geta sent inn ábendingu hér.

Úttektarnefndinni er ætlað að skoða rekstur Orkuveitu Reykjavíkur allt frá stofnun fyrirtækisins. Mun úttekt nefndarinnar beinast sérstaklega að því að skoða hvernig staðið var að mikilvægum skuldbindandi ákvörðunum, þar á meðal aðkomu eigenda, stjórnar og stjórnenda að þessum ákvörðunum. Úttektin mun ennfremur beinast að vinnubrögðum stjórnar, forstjóra og framkvæmdastjórnar og samvinnu þeirra á milli. Þá verða ýmsir þættir innra eftirlits fyrirtækisins metnir og áhættustýring þess skoðuð. Kemur þetta fram í erindisbréfi úttektarnefndarinnar.

Markmiðið er að skýra aðdraganda og orsakir fyrir þeirri stöðu sem rekstur Orkuveitu Reykjavíkur er í með það að leiðarljósi að bæta stjórnsýslu hjá fyrirtækinu og samskipti milli eigenda og fyrirtækisins.

Mun úttektarnefndin gera grein fyrir niðurstöðum sínum í skýrslu til eigenda Orkuveitu Reykjavíkur sem áætlað er að verði tilbúin fyrir 1. mars 2012.

Til þess að senda ábendingu þarf að fylla í reitina hér að neðan.


*Nafn sendanda:


*Efni:

*Netfang:

Vinsamlegast athugið að skrifa netfang rétt inn til þess að svör komist örugglega til skila.

*Ábending

Viðhengi 1:

Viðhengi 2:

Viðhengi 3:


Málsmeðferð:
Allar ábendingar sem berast úttektarnefndinni eru metnar sérstaklega. Úttektarnefndin leggur áherslu á trúnað við þá sem koma fram með ábendingar en getur þó ekki ábyrgst nafnleynd, ef lög mæla fyrir um annað.