Starfsáætlanir
2009
Yfirskrift Menningar- og ferðamálasviðs árið 2009 er Litrík menning – lifandi borg og undirstrikar hún fyrst og fremst áherslu á það lykilhlutverk sem menningin hefur að skapa og standa vörð um mannvænlegt og nærandi samfélag. Yfirskriftin vísar einnig til fjölbreyttrar nálgunar og miðlunar; menningar sem höfðar til margra mismunandi hópa og vekur athygli á Reykjavík sem áhugaverðri og alþjóðlegri menningarborg. Starfsáætlanir allra stofnana sviðsins endurspegla þessar áherslur sem og innra starf safnanna þar sem rannsóknum og varðveislu er sýnd nauðsynleg alúð og athygli.
Starfsáæltun Menningar- og ferðamálasviðs 2009 - samþykkt í borgarráði 18.12.2009 (22.873 kb pdf) Styttri úgáfa (9.014 kb pdf).
2008
Yfirskrift starfsáætlunar Menningar- og ferðamálasviðs árið 2008 er Barnvæn menning – betri borg. Með því endurspeglar sviðið lykilþætti í menningarstefnu Reykjavíkurborgar og minnir á mikilvægi þess að hugað sé markvisst að börnum og ungu fólki við mótun stefnu og framkvæmd í menningarmálum. Á bak við yfirskriftina liggur sú sannfæring að barnvæn menning, sem virðir að verðleikum opinn huga, sköpunargleði og fróðleiksþorsta barna – stuðli að betri borg.
Starfsáætlun Menningar- og ferðamálasviðs 2008 - 16.064 kb pdf
2007
Yfirskrift starfsáætlunar Menningar- og ferðamálasviðs fyrir árið 2007 er Kraftmikil menning - skapandi borg. Með yfirskriftinni er lögð áhersla á þann kraft sem býr í menningarlífi höfuðborgarinnar og starfsmönnum alls sviðsins og vakin athygli á þeim tækifærum sem felast í því að efla Reykjavík sem skapandi borg í víðum skilningi.
Starfsáætlun Menningar- og ferðamálasviðs 2007 - 12.674 kb pdf
2006
Yfirskrift starfsáætlunar Menningar- og ferðamálasviðs fyrir árið 2006 er Opinn hugur - opin hús. Yfirskriftin vísar til áherslna á nýsköpun í hugsun og verki, fjölmenningu og þeirrar stefnu að ná til nýrra hópa gesta með starfi stofnana á vettvangi sviðsins.
Starfsáætlun Menningar- og ferðamálasviðs 2006 - 867 kb pdf
2005
Starfsáætlun menningarmála 2005 - 543 kb pdf