Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skrekkur

Skrekkur

Skrekkur er árleg hæfileikakeppni fyrir grunnskólanemendur í Reykjavík. Allir grunnskólar með unglingadeild geta sent eitt atriði á Skrekk. Fyrirkomulag keppninnar er þannig að skólarnir keppa á fjórum undanúrslita-kvöldum þar sem tveir skólar komast áfram í útslit. Keppt er í Borgarleikhúsinu og fara undanúrslit fram 7. 8., 14. og 15. nóvember. Úrslitakvöldið verður svo 21. nóvember og verður sjónvarpað beint frá því á Skjá einum.
Háteigsskóli fór með sigur af hólmi 2011.
Sjá myndband af siguratriðinu:

Sjá frétt 8. nóv. - Árbæjarskóli og Víkurskóli komnir í úrslit.
Sjá frétt 7. nóv. - Hólabrekkuskóli og Háteigsskóli fyrstir til að tryggja sér sæti í úrslitum Skrekks
Sjá frétt 14. nóv. Langholtsskóli og Réttarholtsskóli komin í útslit
Sjá frétt 15. nóv Langholtsskóli og Réttarholtskóli mæta á úrslitakvöldið þann 21. nóvember

Hægt er að senda fyrirspurnir í tölvupósti á skrekkur@itr.is   
Skrekkur hóf göngu sína 1990 í Háskólabíói en flutti fljótlega í Laugardalshöll. Frá 2000 hefur keppnin farið fram í Borgarleikhúsinu. 
Sjá gamlar myndir frá Skrekkhátíðum                                    

Skekkur

Sigurvegar Skrekks frá upphafi
1990 Breiðholtsskóli
1991 Árbæjarskóli
1992 Breiðholtsskóli
1993 Hagaskóli
1994 Vogaskóli
1995 Hagaskóli
1996 Hvassaleitisskóli
1997 Hagaskóli
1998 Hvassaleitisskóli
1999 Hagaskóli
2000 Hlíðaskóli
2001 Hagaskóli
2002 Hagaskóli
2003 Laugalækjaskóli
2004 Laugalækjaskóli
2005 Austurbæjarskóli
2006 Langholtsskóli
2007 Hlíðaskóli
2008 Austurbæjarskóli
2009 Laugalækjaskóli
2010 Seljaskóli
2011 Háteigsskóli