Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Skóli- og frístundasvið

Um sviðið

Nýtt skóla- og frístundasvið tók til starfa 12. september 2011. Því er ætlað að veita börnum og fjölskyldum í borginni heildstæða þjónustu og stuðla að samfellu í öllu starfi sem hefur velferð barna að leiðarljósi. Ragnar Þorsteinsson stýrir skóla- og frístundasviði.

Leiðarljós skóla og frístundasviðs er að börnum og ungmennum í borginni líði vel, fari stöðugt fram og að þau öðlist uppeldi og menntun fyrir líf og starf. Hlutverk sviðsins er að veita börnum og ungmennum bestu mögulegu tækifæri til leiks, menntunar og frístundastarfs í samvinnu við fjölskyldur og nærsamfélagið og að vera framsækið forystuafl í skóla- og frístundastarfi. Á skóla- og frístundasviði eru börn og ungmenni í brennidepli og öll þjónusta tekur mið af því.

Á skóla- og frístundasviði er leikur, nám og frístund jafn mikilvæg og sérsvið og sérkenni hverrar hugmyndafræði fær að blómstra með áherslu á þverfaglegt samstarf. Þannig skapast tækifæri til fjölbreyttari menntunar- og frístundastarfs fyrir börn og ungmenni.

Undir skóla- og frístundasvið heyra:

  • 63 leikskólar með um 6.000 börn. Auk þess eru um 1000 börn í 18 sjálfstætt starfandi leikskólum. 800 börn dvelja að jafnaði hjá um 200 dagforeldrum.
  • 36 grunnskólar með um 13.400 nemendur, auk 6 sjálfstætt starfandi grunnskóla með um 580 nemendur.
  • 36 frístundaheimili og 4 frístundaklúbbar fyrir um 3.500 börn.
  • 25 félagsmiðstöðvar með um 175.000 heimsóknir á ári.
  • 4 skólahljómsveitir þar sem um 440 nemendur læra á hljóðfæri.
  • Námsflokka Reykjavíkur þar sem um 250 manns stunda nám á ári hverju og um 1.500 manns fá náms- og starfsráðgjöf.
  • Skóla- og frístundasvið greiðir með um 2.500 nemendum í 18 tónlistarskólum í borginni.
  • Hjá sviðinu starfa um 4.300 starfsmenn í um 3.700 stöðugildum. Þar af eru 1.740 stöðugildi
    leik- og grunnskólakennara. 83% starfsmanna eru konur.


Við veitum þjónustu í fjölbreytilegu samfélagi

  • Börnin í borginni eru af minnst 97 þjóðernum og tala yfir 70 tungumál.
  • Um 400 grunnskólanemar fá kennslu í íslensku sem öðru tungumáli.
  • Um 8% leikskólabarna og 25% nemenda í grunnskólum fá stuðning eða sérkennslu. Um 7% barna í frístundastarfi fá sérstakan stuðning. Að auki eru starfræktir fjórir frístundaklúbbar fyrir börn með fatlanir.

 

Börn og ungmenni í Reykjavík ná góðum árangri

  • Nemendur í 10. bekk voru yfir landsmeðaltali í íslensku, stærðfræði og ensku á samræmdum könnunarprófum árið 2011.
  • Niðurstöður Pisa rannsóknar OECD 2009 á lesskilningi, læsi á stærðfræði og náttúrufræði hjá 15 ára nemendum sýndu jákvæða þróun í öllum greinum.
  • 90% foreldra telja markvisst unnið með félagsfærni í leikskólum og 97% þeirra telja barn sitt ánægt í leikskólanum.
  • Um 75% foreldra telja frístundaheimili og félagsmiðstöðvar hafa góð áhrif á félagsfærni barna sinna og að viðfangsefnin séu áhugaverð. 90% foreldra telja að börnunum líði vel í frístundastarfinu.
  • Yfir 90% barna á aldrinum 13-15 ára taka þátt í einhvers konar frístundastarfi.
  • Um 80% nemenda í 6.-10. bekk segjast alltaf eða oftast leggja sig alla fram til að ná tökum á þeirri þekkingu og hæfni sem verið er að kenna þ eim.
  • Yfir 90%foreldra telja að börnum sínum líði vel í grunnskólanum.
     

Sjá staðreyndir um starfsemi skóla- og frístundasviðs 2012.

Sjá staðreyndir um starfsemi sviðsins á ensku 2012

Tillaga og greinargerð um stofnun skóla- og frístundasviðs.

Samþykkt fyrir nýtt skóla- og frístundasvið.

Skipurit fyrir sviðið