Í atvinnuleit

Vinnumiðlun ungs fólks (VUF) leitast við að hjálpa ungu fólki (17 ára og eldra) í atvinnuleit.
Hægt er að leita til okkar varðandi ráðgjöf við atvinnuleit og öllu sem henni tengist.


Við bjóðum ýmis ráð í atvinnuleitinni:

·         Þú getur skráð þig hjá okkur og við reynum að finna starf fyrir þig hjá Reykjavíkurborg.

·         Þú getur komið hingað í Vinnumiðlunina, Pósthússtræti 3-5, notfært þér ókeypis internet, skoðað atvinnuauglýsingar í dagblöðum og fengið góð ráð í atvinnuleitinni.

·         Þú getur sent okkur tölvupóst og beðið um skjöl með góðum ráðum í atvinnuleitinni, yfirlit yfir ráðningarmiðlanir á höfuðborgarsvæðinu, yfirlit yfir fyrirtæki sem sniðugt er að sækja um hjá og ráð um hvernig á að gera ferilskrá.

·         Þú getur sótt ýmis skjöl hérna á síðunni sem tengjast atvinnuleit.

·         Þú getur fengið upplýsingar um vinnu erlendis.



Auk þessa erum við alltaf boðin og búin til þess að svara einstaka fyrirspurnum og hvetjum við þig til þess að vera óhrædd (ur) við að hafa samband.

Að ýmsu er að hyggja þegar leitað er að atvinnu. Nauðsynlegt er t.d. að hafa greinargóða ferilskrá sem lýsir á sem skýrastan hátt þeim atriðum sem nauðsynlegt er að komi fram við atvinnuumsókn. Ferilskrána þarf að eiga á tölvutæku formi svo hægt sé að senda hana á netinu til atvinnurekenda og vinnumiðlana.

Við bjóðum upp á ýmis ráð varðandi atvinnuleitina sjálfa sem og ráð sem gott er að hafa í huga þegar maður er boðaður í atvinnuviðtal.

Hér á síðunni eru einnig upplýsingar um hefðbundið ráðningarferli og um ráðningasamninga og atvinnutilboð.

Hitt Húsið

Vinnumiðlun ungs fólks
Hinu Húsinu
Pósthússtræti 3-5
Sími: 411 5500
atvinnumal@hitthusid.is

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is