Um VUF

Vinnumiðlun ungs fólks (VUF) hefur verið starfandi í Hinu Húsinu frá árinu 1999. Áður var vinnumiðlunin samfléttuð Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins en vegna umfangs og þess hversu starfsemin var afmörkuð var ákveðið að fela Hinu Húsinu umsjón verkefnisins.

Vinnumiðlunin hefur aðallega séð um að taka við umsóknum skólafólks vegna sumarstarfa hjá stofnunum Reykjavíkurborgar og miðla þeim til þeirra. Árið 2005 var hinsvegar samþykkt að Vinnumiðlun ungs fólks verði starfrækt yfir allt árið og þjóni öllu ungu fólki en ekki bara skólafólki.

Nú veitir VUF ungu fólki á aldrinum 17-25 ára aðstoð allt árið um kring. Miðlun sumarstarfa hjá Reykjavíkurborg verður þó eftir sem áður stór hluti starfseminnar.

Til að ná sambandi við starfsfólk VUF er hægt að er hringja í síma 411 5500 eða senda póst á vuf@vuf.is

Hitt Húsið

Vinnumiðlun ungs fólks
Hinu Húsinu
Pósthússtræti 3-5
Sími: 411 5500
atvinnumal@hitthusid.is

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is