Um Höfuðborgarstofu
Höfuðborgarstofa tók til starfa í ársbyrjun 2003 og sinnir hún þríþættum verkefnum fyrir hönd Reykjavíkurborgar; rekstri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna í Reykjavík (UMFR), almennum ferða- og kynningarmálum Reykjavíkur auk þess að bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd ýmissa lykilviðburða á vegum borgarinnar, s.s. Vetrarhátíðar, Menningarnætur, Aðventuhátíðar ofl. og vera ráðgefandi fyrir skipuleggjendur stórra viðburða í borginni.
Með stofnun Höfuðborgarstofu undirstrikar Reykjavíkurborg aukna áherslu á mikilvægi ferða- og markaðsmála fyrir borgina í heild. Hjá miðstöðinni hefur orðið til nýr vettvangur fyrir samstarf á vettvangi ferðaþjónustu. Skýr farvegur fyrir ferða- og kynningarmál í tengslum við viðburðaskrifstofu skapar jafnframt nýja möguleika í vöruþróun t.d. á sviði menningar- og heilsutengdrar ferðaþjónustu og er því mjög þýðingarmikið framlag til að styrkja stöðu Reykjavíkur sem höfuðborgar Íslands í samkeppni á alþjóðavettvangi.
Frá 1. september 2006 hefur Höfðuborgarstofa haft umsjón með þekkingarheimsóknum til borgarinnar. Þekkingarheimsóknir eru skipulagðar heimsóknir þar sem tekið er á móti erlendum aðilum sem vilja kynna sér starfsemi og sérstöðu borgarinnar. Tilgangur þekkingarheimsókna er að gefa öðrum tækifæri á að kynnast og nýta reynslu Reykjavíkurborgar á hinum ýmsu sviðum til að ná betri árangri og/eða að kynna sér innleiðingu nýrra aðferða í rekstri.
Reykjavík Loftbrú
Höfuðborgarstofa vistar sjóðinn Reykjavík Loftbrú sem ætlað er að styðja framsækið íslenskt tónlistarfólk til að hasla sér völl á erlendri grund og kynna í leiðinni Reykjavík sem nútímalega menningarborg. Smellið hér til að nálgast umsóknareyðublað fyrir Reykjavík Loftbrú. Ath. pdf skjal, nýtt eyðublað og skilyrði sett inn 18. febrúar 2009. Umsókn þarf að berast fyrir 20. hvers mánaðar og má brottför ekki vera innan þriggja vikna frá þeirri dagsetningu. Ekki er veitt úr sjóði Loftbrúar í júlí.
Loftbrú fjöldi verkefna og farseðla 2003 - 2009
|
|
2003 |
2004 |
2005 |
2006 |
2007 |
2008 |
Alls |
|
Fjöldi verkefna |
37 |
69 |
104 |
98 |
121 |
107 |
536 |
|
Fjöldi farseðla |
184 |
269 |
416 |
389 |
512 |
497 |
2267 |
Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður
sif@visitreykjavik.is
Ása Sigríður Þórisdóttir, verkefnastjóri þekkingarheimsókna (í fæðingarorlofi)
asa@visitreykjavik.is
Hinrik Fjeldsted, verkefnastjóri þekkingarheimsókna
hinrik.fjeldsted@reykjavik.is
Ásta Kristín Sveinsdóttir, upplýsingafulltrúi
asta@visitreykjavik.is
Dóra Magnúsdóttir, markaðsstjóri ferðamála (í fæðingarorlofi)
dora@visitreykjavik.is
Drífa Magnúsdóttir, verkefnastjóri Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna
drifa@visitreykjavik.is
Guðríður Inga Ingólfsdóttir, fulltrúi viðburða (í fæðingarorlofi)
gurry@visitreykjavik.is
Heiðrún Hákonardóttir, skrifstofustjóri
heidrun.hakonardottir@reykjavik.is
Skúli Gautason, fulltrúi viðburða
skuli.gautason@reykjavik.is
María Reynisdóttir, markaðsfulltrúi
maria@visitreykjavik.is
Björg Rún Óskarsdóttir, upplýsingafulltrúi
björg.run.oskarsdottir@reykjavik.is