menntasvid_banner     Mynd eftir nemanda úr Fellaskóla     

Innritun

Innritun í grunnskóla Reykjavíkur skólaárið 2010-2011

Innritun barna sem fædd eru árið 2004 og eiga að hefja skólagöngu haustið 2010 fer fram dagana 8. til 14. febrúar næstkomandi. Innritun fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík.  Sömu daga fer fram innritun skólaskyldra barna og unglinga sem þurfa að flytjast milli skóla næsta haust. Þetta á við um þá sem flytjast til Reykjavíkur, koma úr einkaskólum eða þurfa að skipta um skóla vegna breytinga á búsetu milli borgarhverfa. Nemendahópa sem flytjast í heild á milli skóla að loknum 6. og 7. bekk þarf ekki að innrita.

Skólahald í Úlfarsárdal hefst haustið 2010 fyrir nemendur í 1. – 5. bekk.

Senda má fyrirspurnir um innritun í tölvupósti til Hafdísar Gísladóttur.






 


 



Menntasvið og Leikskólasvið
Reykjavíkurborgar
Fríkirkjuvegi 1
Sími: 411 7000
menntasvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðin

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is