Heimaþjónusta Reykjavíkur
16.01.2009
Heimaþjónusta Reykjavíkur
Þann 30. desember 2008 skrifuðu borgarstjóri og heilbrigðisráðherra undir þjónustusamning þar sem Reykjavíkurborg tekur að sér frá og með 1.janúar 2009 að reka heimahjúkrun í Reykjavík og sameina hana rekstri félagslegrar heimaþjónustu í Reykjavík í þjónustukerfi sem myndar samhæfða heild gagnvart notanda. Verkefnið er tilraunaverkefni til þriggja ára.
Í tilefni af yfirfærslu heimahjúkrunar til borgarinnar var stofnuð ný skipulagseining undir Velferðarsviði undir heitinu Heimaþjónusta Reykjavíkur
Hlutverk Heimaþjónustu Reykjavíkur er að veita heimahjúkrun allan sólarhringinn í Reykjavík og Seltjarnarnesi, kvöld- helgar og næturheimahjúkrun í Mosfellsbæ og næturheimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.
Kvöld- og helgarþjónusta félagslegrar heimaþjónustu verður rekin frá Heimaþjónustu Reykjavíkur frá 1. mars 2009. Jafnframt mun Heimaþjónusta Reykjavíkur leiða samvinnu dagþjónustu heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu en dagþjónusta félagslegrar heimaþjónustu verður áfram veitt hverfabundið frá þjónustumiðstöðvum borgarinnar.
Heimaþjónusta Reykjavíkur er til húsa að Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími er 411 9600, faxnr: 411 9699, netfang: heima@reykjavik.is
Forstöðumaður Heimaþjónustu Reykjavíkur er Berglind Magnúsdóttir og hefur hún störf þann 21. janúar 2009.
Þórdís Magnúsdóttir, fyrrum forstöðumaður Miðstöðvar heimahjúkrunar mun áfram stýra daglegri þjónustu heimahjúkrunar undir merkjum Heimaþjónustu Reykjavíkur. Lagt verður upp með að skjólstæðingar heimahjúkrunar finni sem minnst fyrir þessum breytingum nema í formi öflugri og heildstæðari þjónustu þegar fram líða stundir.