Opinn íbúafundur um mennta- og frístundamál
26.01.2010
Upplestur á frétt 
Opinn íbúafundur um menntamál og íþrótta- og tómstundamál á Kjalarnesi verður haldinn í Klébergsskóla · miðvikudaginn 27. janúar kl. 17:00. Frummælandi: Kjartan Magnússon, formaður menntaráðs og íþrótta- og tómstundaráðs. Fundarstjóri: Sigríður Pétursdóttir, fulltrúi í menntaráði.
Fjallað verður um skólahald, íþróttir og tómstundamál og farið yfir stöðuna í uppbyggingu skóla- og íþróttamannvirkja í hverfinu. Þá verður kynnt vinna við mótun nýrrar menntastefnu á vegum Reykjavíkurborgar. Að loknu inngangserindi verða umræður með þátttöku íbúa, fulltrúa foreldra- og íþróttafélaga, Menntasviðs og Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar.