Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Undirbúningur að byggingu húsnæðis fyrir eldri borgara við Gerðuberg á fullri ferð

29.01.2010

Upplestur á frétt 

thjonustu_gerduberg1

 

Samráðsnefnd um byggingu íbúða fyrir eldri borgara við Gerðuberg hefur verið skipuð og þegar hafa nokkrir fundir verðið haldnir. Guðmundur Pálmi Kristinsson frá Framkvæmda- og eignasviði er formaður nefndarinnar og fulltrúar Velferðarsviðs eru þau Guðrún Jónsdóttir, deildarstjóri Félagsstarfsins Gerðubergi og Þorsteinn Hjartarson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Breiðholts. Fulltrúar Félags eldri borgara eru þeir Unnar Stefánsson, formaður félagins, Sigurður Einarsson, framkvæmdastjóri og Stefán Ólafur Jónsson fyrir hönd bygginganefndar félagsins. Berglind Magnúsdóttir, forstöðumaður Heimaþjónustu Reykjavíkur starfar með hópnum og fleiri hafa verið kallaðir til. Í slíkri undirbúningsvinnu þarf margt að skoða sem snýr að tengingum að félagsstarfinu og Menningarmistöðinni Gerðubergi, heimaþjónustu, hönnun íbúða og húsnæðis, þjónusturými og frekari útfærslu á samningi Félags eldri borgara og Reykjavíkurborgar. Þá hefur verið stofnaður minni vinnuhópur sem vinnur að frekari þarfagreiningu og lýsingu á þjónustu og samstarfi í Gerðubergi og nærsamfélaginu. Vinnuhópinn skipa þær Guðrún Jónsdóttir, Berglind Magnúsdóttir og Margrét Margeirsdóttir sem kemur frá Félagi eldri borgara. Síðan verður afrakstur þeirra vinnu kynntur í fréttabréfi og á aðalfundi Félags eldri borgara í febrúar. Efnt verður til samkeppni um heiti en stefnt er að því að taka fyrstu skóflustunguna að þessu nýja íbúðarhúsnæði fyrir eldri borgara á sumardaginn fyrsta.