Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

ÍR-ingar Íslandsmeistarar í flokki 15-22 ára, í 7. sinn í röð!!

01.02.2010

Glæsilegur ÍR sigur vannst  í heildarstigakeppni  milli félaganna á Meistaramóti Íslands 15-22 ára í dag en liðið sigraði með rúmlega 200 stiga mun. Sigur vannst í öllum stigakeppnum einstakra aldursflokka nema í flokki sveina en þeir urðu í 3. sæti. Alls unnust 20 gullverðlaun, 17 silfurverðlaun og 22 bronsverðlaun. Mikið var um bætingar hjá ÍR-ingum um helgina og sú óvanalega staða kom upp að í meyjaflokki vannst þrefaldur ÍR-sigur í 200m, 800m, þrístökki og hástökki. Sömu stúlkur settu nýtt Íslandsmet í 4 x 200m boðhlaupi meyja, stúlkna, ungkvenna og kvenna, sveitina skipuðu þær Vera Sigurðardóttir, Björg Gunnarsdóttir, Arna Stefanía Guðmundsdóttir og Dóróthea Jóhannesdóttir. Til hamingju ÍR-ingar með helgina ! Sjá einnig  irsida.is