Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Tálgað í Hraunbæ 105

25.02.2010

Upplestur á frétt 

Tólf manna hópur byrjaði á námskeiðinu í síðustu viku og stigu þátttakendur
þar sín fyrstu skref í tálguninni en hópurinn hyggst hittast einu sinni í viku.
Krús tálguð Ausa tálguð með exi

Leiðbeinendanum Ólafi Oddssyni kom á óvart hversu vel gekk hjá þátttakendum
að tileinka sér flókna tálgutæknina og er hópurinn þegar farinn að glíma við
flókin verkenfni s.s. ausu- og krúsagerð en við það eru axir og sérstakir
krókhnífar notaðir.
Eins og sjá má á myndunum er unnið af kappi og einbeitingin algjör.
Námskeiðið er liður í undirbúningi að samstarfi við Ártúnsskóla en
fyrirhugað er að tengja saman vinnu nemenda og hópsins í grenndarskógi
skólans við Elliðaárnar. Samstarfið er unnið undir merkjum "virðingarinnar"
en það er áhersluþáttur í starfi skólans með nemendum og starfsfólki um
þessar mundir.