Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Forseta heimsókn í Norðlingaskóla

02.03.2010

Upplestur á frétt 

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson og frú Dorrit Moussaieff, heimsóttu Norðlingaskóla miðvikudaginn 24. febrúar ásamt fríðu föruneyti. Dagurinn skartaði sínu fegursta, veður var stillt og sólin skein. Tekið var á móti gestunum í Björnslundi þar sem nemendur Norðlingaskóla og Skógarhússins voru að störfum og leik. Átta nemendur buðu hópinn velkominn og kynntu lundinn og skólann fyrir gestum og buðu upp á heitt kakó og flatkökur með hangiketi að hætti Norðlinga.  Hér má sjá myndir frá heimsókninni.

Forsetinn ásamt föruneyti Staðið við hlóðir

Forsetinn og frú Forsetinn ræðir við börnin

Gestirnir gengu um lundinn og skoðuðu aðstæður, gáfu sig að nemendum og nutu útiverunnar. Höfðu þeir á orði að aðstaðan í Björnslundi væri hrífandi og að þeir hefðu ekki fyrr séð svona aðstæður tengdar skólastarfi. Í framhaldi var ekið að Norðlingaskóla þar sem gestirnir gengu um skólann í fylgd stjórnenda. Litið var inn í allar skólastofur þar sem nemendur voru að störfum í ólíkum smiðjum. Glaðlegur andi fylgdi gestunum, áhugi á nemendum og verkum þeirra var einlægur og gáfu forsetahjónin og fylgdarlið þeirra sér góðan tíma til að spjalla við nemendur og kynna sér vinnu þeirra. Fulltrúar í nemendaráði afhentu þeim gjöf frá nemendum sem fólst í einu heilræði frá hverjum nemanda sem búið var að koma í glerkrukku. Höfðu þau hjón á orði að þetta væri frumlegasta og skemmtilegasta gjöf sem þau hefðu tekið við. Fulltrúar Sparisjóðanna sem standa á bak við Menntaverðlaun forseta Íslands afhentu skólanum að gjöf bók sem nemendur tóku við fyrir hönd skólans. Að þessu loknu gæddu gestir sér á skólastjórasúpu með meiru ásamt fulltrúum foreldrafélagsins og skólaráðs. Heimsóknin endaði á myndatöku og spjalli við starfsfólk. Er óhætt að segja að gestunum hafi fylgt gleði, hvatning og viðurkenning á starfi skólans. Nemendur og starfsfólk þakka af alúð gestunum fyrir komuna og samveruna.