
Forvarnardagurinn var haldinn í fjórða sinn miðvikudaginn 30. september 2009 að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við ýmis félög og sveitarfélögin í landinu. Að venju fólst dagskrá Forvarnardagsins í verkefnavinnu í 9. bekkjum grunnskólanna. Tilgangur þeirrar vinnu er að fá fram sjónarmið unglinganna sjálfra, skoðanir þeirra og fengu þeir meðfylgjandi spurningar að glíma við:
• Hvað vilja unglingar gera oftar með fjölskyldum sínum?
• Hvað geta þeir sjálfir gert til að stuðla að fleiri samverustundum innan fjölskyldunnar?
• Hvað er það sem hvetur börn og unglinga til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi?
• Hver er ávinningurinn af því að drekka ekki áfengi á unglingsárunum að þeirra mati?
• Hvaða stuðning telja þeir bestan í þeim efnum?
Skýrsla með helstu niðurstöðum er komin út og eru allir sem láta sig forvarnir og málefni unga fólksins varða hvattir til að kynna sér þær hugmyndir sem unglingarnir hafa fram að færa og hagnýta má m.a. við stefnumótun í æskulýðs-, íþrótta- og tómstundamálum. Margar hugmyndanna eru einfaldar, vel framkvæmanlegar og kostnaðarlitlar. Þýðingarmikið er að vera vel vakandi fyrir jákvæðum tillögum sem koma má til framkvæmda með litlum tilkostnaði og hvatt geta fjölskyldur til aukinnar samvista.
Skýrsla Forvarnardagsins 2009 er aðgengileg á netinu.
Ljósmyndirnar sýna nemendur í Hólabrekkuskóla og félaga í Gerðubergskórnum á Breiðholtsdögum 2009