Aukin þjónusta lögreglunnar og Vesturgarðs
11.03.2010
Upplestur á frétt 
Á morgun, föstudaginn 12. mars nk. verður hrint í framkvæmd nýrri þjónustu við íbúa Vesturbæjar. Þá mun Jóhann Karl Þórisson aðalvarðstjóri lögreglustöðvar 5 hafa aðstöðu í Þjónustumiðstöð Vesturbæjar og taka á móti íbúum.
Þessi þjónusta Lögreglustjórans á Höfuðborgarsvæðinu kemur í kjölfar undirritunar samstarfssamnings Lögreglunar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar þann 28. janúar sl.
Framvegis mun tengiliður lögreglunar hafa aðstöðu í Þjónustumiðstöð Vesturbæjar annan föstudag í mánuði á milli 10:00 og 12:00.
Íbúar Vesturbæjar eru eindregið hvattir til að nýta sér þessa auknu þjónustu Lögreglunnar og Vesturgarðs, þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar. Viðtalsbókanir fara fram hjá þjónustufulltrúum þjónustumiðstöðvarinnar í síma 411 1700 eða í gegnum netfagnið vesturgardur@vesturgardur.is