Þorrasel, dagdeild aldraðra 10 ára
12.03.2010
Upplestur á frétt 
Eins og áður hefur verið auglýst verður opið hús í Þorraseli laugardaginn 13. mars. Þá er Reykvíkingum boðið að kynna
sér starfsemi dagdeildarinnar. Kaffi og vöfflur verða á góðu verði og handverk verða seld.
Opið verður á milli 13:00 og 15:00.
Allir velkomnir!
Mikil ánægja var með afmæliskaffi Þorrasels í fyrradag er haldið var upp á 10. ára afmæli dagdeildarinnar.
Margt var um manninn og allir fengu afmælisköku með kaffinu. Margir gestir heiðruðu samkomuna
ma. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi, Agnar Bragi Bragason og Ása Björk Ólafsdóttir úr hverfisráði Vesturbæjar.
Borgarfulltrúinn Oddný Sturludóttir fór á kostum og sýndi gestum á sér "hina hliðina". Eins og alkunna er, er hún píanóleikari af bestu gerð en hún flutti stemmur og söng fyrir gesti, ásamt því að spila verk eftir Brahms á píanó.


