Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

300 gestir á sundvöku í Laugardalslaug

22.07.2010

Upplestur á frétt 

300 gestir komu á sundvökuna í Laugardalslaug síðastliðna nótt. Af þessu má ráða að þessi nýjung ,sem borgaryfirvöld ákváðu að bjóða upp á nú í fyrsta sinn, hefur fallið í góðan jarðveg meðal borgarbúa.

Að sögn starfsmanna gekk sundvakan afar vel, talverður fjöldi gesta var fram til klukkan fjögur í lauginni en eftir það tók sundlaugargestum að fækka. Nokkrir nátthrafnar kunnu vel að meta að láta fara vel um sig í lauginni og voru til klukkan sex í morgun.

Starfsmenn Laugardalslaugar eru að vonum ánægðir með að allt skyldi ganga vel og eru vongóðir um að svo verði ennfremur næstu nætur. Ef vel gengur nú gæti svo farið að sundvaka yrði haldin árlega svo borgarbúar geti notið þess að fara í sund á björtum sumarnóttum. Rétt er að benda á að meðferð áfengis í lauginni er að venju stranglega bönnuð. Börn yngri en 16 ára fá ekki aðgang á nóttunni nema í fylgd með fullorðnum og er það í samræmi við útivistarreglur barna í borginni.