Breiðholtsliðið Íslandsmeistari í Strandhandboltanum 2010
26.07.2010
Upplestur á frétt 
Laugardaginn 24. júlí fór fram hið árlega Íslandsmeistaramót í Strandhandbolta í Nauthólsvík. Strandhandbolti er spilaður um alla Evrópu yfir sumartímann og á vaxandi vinsældum að fagna hér á landi. Þetta er í sjöunda skiptið sem mótið fer fram og hefur það vaxið í umfangi ár frá ári.
Að þessu sinni taka 16 lið þátt en 8 karlalið og 8 kvennalið eru skráð til leiks og komust færri að en vildu. Liðin eru skipuð leikmönnum úr efstu deildum handboltans hér heima en að auki laumast einn og einn atvinnumaður með. Þátttakendur eru hátt í 200 talsins. Mótið er hin mesta skemmtun þar sem leikirnir eru stuttir og hraðir og spilað er undir dúndrandi strandartónlist. (Fréttavefur RÚV.)