Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Kvöldgöngur með leiðsögn á fimmtudagskvöldum kl.20:00

05.08.2010

Upplestur á frétt 

Borgarbókasafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Minjasafn Reykjavíkur
bjóða upp á kvöldgöngur með leiðsögn á fimmtudagskvöldum í sumar.
Lagt er af stað í göngurnar kl. 20.
Allir velkomnir og þátttaka ókeypis!

5. ágúst Listasafn Reykjavíkur - Götulist
Myndlistamaðurinn Sara Riel leiðir göngu þar sem borgarmyndin verður skoðuð út frá hugmyndum um Urban art eða götulist. Upphafsstaður göngunnar verður Hjartatorg milli Hverfisgötu, Klapparstígs og Laugavegar. Lagt af stað kl. 20:00 og þátttaka ókeypis!

12. ágúst
Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns: Pöbbaganga í miðbænum
Næturlífið hefur löngum verið helsta stundargaman Reykvíkinga, enda blómstra veitingastaðir í borginni sem aldrei fyrr. Sumir þeirra eiga sér langa og skrautlega sögu, aðrir hafa orðið að miðstöð menningarvita. Lagt er upp frá Grófarhúsi.