Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Grænlenskir nágrannar kynna sér velferðarþjónustu í Reykjavík

27.08.2010

Upplestur á frétt 

Góðir gestir frá sveitarfélaginu Sermersooq, sem er fjölmennasta sveitarfélag Grænlands, eru þessa dagana að kynna sér velferðarþjónustu borgarinnar, starfsemi Vinnumálastofnunar og fleira sem lýtur að velferð íbúanna. Fimmtudaginn 26. ágúst heimsóttu grænlensku gestirnir Þjónustumiðstöð Breiðholts en þar kynntu þau Hákon Sigursteinsson, Þóra Kemp og Þorsteinn Hjartarson starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar, helstu áherslur, forvarnarverkefni, samstarfið í hverfinu og hvernig unnið er að þróun þverfaglegrar nærþjónustu í Breiðholti.

 

Túlkur hópsins er Benedikte Thorsteinsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra Grænlands en hún bjó um tíma hér á landi og er gift Guðmundi Thorsteinssyni, sem er einnig með í för. Hann starfar sem deildarstjóri Velferðarsviðs Sermersooq.

 

Íbúar Sveitarfélagsins Sermersooq eru um 23 þúsund og því er vel við hæfi að bera saman bækur sínar við stjórnendur í skóla- og velferðaþjónustu í Breiðholti þar sem rúmlega 21 þúsund manns búa og viðfangsefnin á margan hátt svipuð.

 

Nuuk, sem er höfðuborg Grænlands, er í sveitarfélaginu Sermersooq. Einnig fjórir aðrir bæir: Tasiilaq (Ammassalik), Illoqqortoormiut (áður Scoresbysund), Ivittuut og Paamiut. Sveitarfélög voru sameinuð á Grænlandi á síðasta ári úr 18 í 4. Sveitarfélagið Sermersooq er gríðarstórt eða um 635 þúsund ferkílómetrar.