Fundur hverfisráðs Vesturbæjar - leikvallafundur
31.08.2010
Upplestur á frétt 
Næstkomandi fimmtudag, 2. september, mun Hverfisráð Vesturbæjar halda
2. fund sinn á þessu hausti. Að þessu sinni er meginefni fundarins
opnu leiksvæðin á Högunum. Fundurinn fer fram undir berum himni og
hverfisráðið mun ganga á milli stærstu leiksvæðanna, kynna sér
aðstæður og ræða hugsanlegar aðgerðir og endurbætur.
Hverfisráð hvetur íbúa nærliggjandi húsa til að
hitta hverfisráðið á þessari göngu, benda á það sem betur má fara,
leggja góðar hugmyndir í sarpinn eða bara fá sér kaffibolla með
kjörnum fulltrúum í ráðinu og starfsmönnum þess.
Það er von ráðsins að sem flestir sjái sér fært að koma út á opnu
svæðin og taka þátt í uppbyggilegum umræðum um það hvernig best sé
hægt að gera þau úr garði.
Gönguáætlunin er sem hér segir:
Kl. 16:00 Fundurinn hefst á Melhagaróló (einnig kallaður Aparóló eða
Kókakóla-róló), milli Melhaga og Neshaga.
Kl. 16:20 Fundi framhaldið á róló fyrir aftan Vesturgarð við Hjarðarhaga
Kl. 16:40 Fundi framhaldið á Kvisthagaróló, fyrir aftan Kvisthaga 7
Kl. 17:00 Fundi framhaldið á Tómasarhagaróló, fyrir aftan Tómasarhaga 51 og 53
Kl. 17:20 Fundi framhaldið á Dunhagaróló (milli Tómasarhaga, Hjarðarhaga og Dunhaga)
Kl. 17:40 Fundi framhaldið á Lynghagaróló (Milli Lynghaga og Tómasarhaga)
Kl. 18:00 Fundi slitið
Vonumst til að sjá sem flesta.
Fyrir hönd Hverfisráðs Vesturbæjar,
Gísli Marteinn Baldursson, formaður.