Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Breytingar á útivistartíma barna

01.09.2010

Upplestur á frétt 

Í dag þann 1.september  breytist útivistartími barna og ungmenna samkvæmt reglum um útivistartíma barna og ungmenna.
Vetrartíminn tekur nú við sumartímanum og sá tími sem börn mega vera úti á kvöldin styttist. Frá 1. september til 1. maí mega börn 12 ára og yngri vera úti til kl. 20 en 13-16 ára mega vera úti til kl. 22.
Fyrir utan þessa tíma verða börn að vera í fylgd með fullorðnum.

Bregða má þó út af þessum reglum þegar börn 13-16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri
skóla-, íþrótta-, eða æskulýðssamkomu.

Reglur um útivistartíma segja til um hvað börnin mega vera lengi úti en ekki hvað þau eiga að vera lengi úti.
Foreldrar geta vel sett sínar eigin reglur innan ramma útivistarreglnanna.

Reglur um útivistartíma eru börnunum til verndar og eru samkvæmt barnaverndarlögum.

Viðhorf til þess að virða reglur um útivist hefur breyst mjög á undanförnum árum
enda hafa fleiri áttað sig á mikilvægi þeirra fyrir heilsu og vellíðan barna og ungmenna.

Útivistarreglurnar hafa í sjálfum sér mikið forvarnargildi.
Börn og ungmenni sem eru að vaxa og þroskast þurfa nægan svefn.  Góð hvíld gerir þau  hæfari til að takast á við verkefni hversdagsins.  Það að vera komin heim á skikkanlegum tíma og eiga stund heima með fjölskyldunni fyrir háttinn er raunveruleg forvorn.  Rannsókin(Ungt fólk 2007) sýna að  því meira eftirlit og samveru sem foreldrar eiga með börnum því:
• minni líkur á vímuefnanotkun
• ólíklegri til að eignast vini sem hafa neikvæð áhrif í lífi þeirra
• líklegri til að standast hópþrýsting jafnaldra sinna
• líklegri til að líða vel í skóla og ná betri námsárangri
• ólíklegri en aðrir unglingar til að eiga við margvísleg sálræn og félagsleg vandamál að stríða.

Börn og unglingar sem eru eftirlitslaust úti frameftir kvöldum eru í áhættu og líklegri til að fara fyrr að fikta við tóbak,
áfengi eða önnur vímuefni. Jafnframt eru þau börn sem eru úti eftir að skyggja tekur eru líklegri til að lenda í slysum/óhöppum.


 JRJ