Kynning á vetrarstarfi félagsmiðstöðvarinnar Hvassaleiti
01.09.2010
Upplestur á frétt 
Miðvikudaginn 8. september kl. 13.30 verður kynning á vetrarstarfi félagsmiðstöðvarinnar Hvassaleiti 56-58.
Að sjálfsögðu er öllum velkomið að taka þátt í dagskrá vetrarins, óháð aldri og búsetu. Líkt og undanfarin ár ættu allir að getað fundið ýmislegt við sitt hæfi og einnig er hægt að koma með hugmyndir að eigin hópi sem starfað gæti í Hvassaleiti.
Boðið verður upp á kaffi og með því á vægu verði.