Íþróttafélag Reykjavíkur með veislu í tilefni Þorra
04.01.2012
Upplestur á frétt 
Í fyrsta sinn í sögu Íþróttafélags Reykjavíkur verður blásið til veislu í tilefni Þorra. Hingað til hefur ÍR ekki haft möguleika á stórri samkomu sem þessari þar sem þeir eiga ekki nægilega stórt húsnæði til þess. Nú hefur ÍR hins vegar tekið við rekstri íþróttahúss Seljaskóla og því auðveldara um vik og verður veislan þar þann 28.janúar.
Þó ÍR haldi fagnaðinn, þá er ekki um uppskeruhátíð félagsins að ræða sem slíka, heldur ástæða til að koma Breiðhyltingum saman. Þarna er kjörið tækifæri fyrir fólk úr hverfinu og brottflutta að sameinast yfir góðum kvöldverði, frábærum skemmtikröftum, dúndur skemmtilegri hljómsveit og söngvurum. IR-ingar hvetja alla til að mæta, en aldurstakmark er 18 ár.
Nánari upplýsingar nálgast þú á vef ÍR www.ir.is