Þrettándahátíð Vesturbæjar 2012 klukkan 18:00
04.01.2012
Upplestur á frétt 
Þrettándahátíð Vesturbæjar verður sem fyrri ár haldin föstudaginn 6. janúar með pompi og prakt. Venju samkvæmt verður safnast saman við Frostaskjól, á svæði KR, Frístundamiðstöðvarinnar Frostaskjóls og Do Re Mí klukkan 18:00. Barna- og stúlknakór Neskirkju taka á móti gestum með ljúfum söng og KR flugeldar verða með kyndla til sölu. Formaður hverfisráðs Vesturbæjar mun svo senda skrúðgöngu af stað með stuttu ávarpi um klukkan 18:10 og munu Ægisbúar leiða viðburðaríka gönguna, óvænt atriði verða á leiðinni... ásamt lúðrablásurum að brennustæðinu á Ægisíðu. Brennan verður tendruð um kl. 18:30. Kakó og kleinur verða gefnar á meðan byrgðir endast, fjöldasöngur verður og Guðmundur Steingrímsson þenur nikkuna. Um klukkan 18:50 sjá KR flugeldar svo um að lýsa upp himininn með flugeldasýningu að hætti hússins!
Allir eru hvattir til að mæta vel búnir og skilja bílinn eftir heima.
Sjáumst kát í Vesturbænum á þrettándanum og njótum samveru við vini og vandamenn.
Kíkið á Snjáldurskinnusíðu (facebook) viðburðarins á slóðinni:
http://www.facebook.com/events/317306194967838/