Klókir krakkar
18.01.2012
Upplestur á frétt 
Námskeiðið Klókir krakkar verður haldið á Þjónustumiðstöð Breiðholts þann 21. febrúar 2012, kl. 14:30, sjá dagskrá. Námskeiðið er haldið vikulega í 10 vikur og lýkur 8. maí 2012. Sjá nánari upplýsingar í bækling.
Námskeiðið er barni og forráðamönnum þess að kostnaðarlausu, en báðir aðilar sitja námskeiðið.
Klókir Krakkar (Cool Kids Program) er meðferðarúrræði sem var þróað hjá áströlsku rannsóknarmiðstöðinni Macquire University Anxiety Research Unit (MUARU) í samvinnu við Ronald M. Rapee og samstarfsmanna hans við Macquarie háskólann í Ástralíu. Edda Margrét Guðmundsdóttir, þýddi handbækurnar sem hluta af Cand.psych. rannsókn við Háskóla Íslands og Barna- og unglingageðdeild Landspítala Háskólasjúkrahúss (BUGL) árið 2005. Klókir Krakkar er stöðluð meðferð við kvíðaröskunum barna og sýnt hefur verið fram á góðan árangur meðferðarinnar. Sex til átta börn og foreldrar þeirra eru saman í hvert sinn.
Hópmeðferðin er haldin vikulega í tíu vikur og varir í eina til eina og hálfa klukkustundir í senn. Í upphafi meðferðar fá börn og foreldrar vinnubækur. Þau eru frædd um eðli kvíða og kenndar aðferðir til að takast smám saman á við kvíða barnanna. Börnunum er kennt að hugsa eins og einkaspæjari þar sem þau finna sannanir fyrir óraunsæjum kvíðahugsunum og læra að hugsa á raunsæjan hátt. Einnig er farið í stigvaxandi berskjöldun þar sem börnin læra að mæta óttanum í litlum skrefum. Í seinni hluta meðferðarinnar er farið í félagslega færni og ákveðniþjálfun. Foreldrar fá fræðslu um kvíðaeinkenni og úrræði, hvernig er að ala upp barn sem þjáist af kvíða og farið er yfir hvað börnin eru að læra í hverjum tíma fyrir sig.
Í upphafi námskeiðs eru foreldrar og barn boðuð til viðtals þar sem fylltir eru út matskvarðar og lagt mat á það hvort námskeiðið henti barninu. Um miðbik námskeið er boðið upp á einstaklingsviðtal fyrir barn og foreldra þar sem unnið er í gerð kvíðastiga. Við lok námskeiðs eru foreldrar og börn beðnir um að fylla aftur út matslista og mæta í kjölfarið í viðtal þar sem árangur er metinn og næstu skref ákveðin. Meðal annars er rætt um hvernig á að viðhalda árangri og takast á við bakslag.
Markhópur námskeiðsins eru börn á aldrinum 8-12 ára með kvíðaröskun og mögulega fylgiraskanir. Ramminn um kennsluna er þannig að þrír sálfræðingar frá þjónustumiðstöðinni eru með námskeiðið, Elísa Guðnadóttir, Erla Margrét Hermannsdóttir og Margrét Birna Þórarinsdóttir. tveir með barnahópinn og einn með foreldrahópinn.