Glæsilegt eimbað og aukinn kraftur í nuddpottinum í Grafarvogslaug
19.01.2012
Upplestur á frétt 
Glæsilegt eimbað og aukinn kraftur í nuddpottinum í Grafarvogslaug
Nýtt eimbað verður opnað í Grafarvogslaug á föstudag og er það byggt á grunni eldra eimbaðs sem orðið var tímabært að endurnýja. Gengið er inn í eimbaðið úr glerskála við heitu pottana og er útsýni úr eimbaðinu að sundlauginni en glerveggur skilur að eimbað og glerskálann. Eimbaðið er að öðru leyti steinsteypt og verður klætt utan í samræmi við sundlaugarbygginguna. Gólf og veggir eimbaðsins eru flísalagðir og loft er málað. Gluggar eru úr áli með öryggisgleri í þaki, hurðum og gluggavegg að eimbaði.
Gestir laugarinnar hafa sýnt biðlund gagnvart framkvæmdum en gamla eimbaðið, sem var byggt til bráðabrigða á sínum tíma, var fjarlægt í haust. Nú er biðin á enda og tilhlökkun mikil, ekki síst á meðal fastagesta. Þá munu gestir einnig endurheimta útisturturnar og komið hefur verið fyrir drykkjarfonti úr stuðlabergi í nálægð við eimbaðið.
Einnig fá gestir laugarinnar innan tíðar nýjar og afkastameiri dælur í nuddpottinn. Ólafur Gunnarsson hjá ÍTR segir að verið sé að bregðast við ábendingum gesta og vonar hann að þessar breytingar falli í kramið. Til viðbótar 4,5 kW dælu kemur 7,5 kW vatnsdæla og einnig loftdælur á hvora rás. Með hinu nýja fyrirkomulagi fæst jafnara og umtalsvert kröftugra nudd og þá væntanlega sultuslakir gestir.
Á síðasta ári voru um 200 þúsund heimsóknir í Grafarvogslaug og um síðustu áramót var fjöldi heimsókna frá því laugin var opnuð árið 1998 kominn í 2.981.396. Í febrúar er gert ráð fyrir að fjöldi heimsókna í laugina nái þremur milljónum.
Eimbaðið með aðliggjandi tæknirýmum er 52,6 fermetrar, þar af er eimbaðið sjálft um 11 fermetrar og glerskálinn þar fyrir framan er um 10 fermetrar. Umsjón með verkinu hafði Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar og var framkvæmdin boðin út í júlí. Aðalverktaki var SE-hús og hönnun var á hendi Vilhjálms Hjálmarssonar á Teiknistofunni Óðinstorgi. Kostnaður er um 37 milljónir króna.