Aftur á forsíðu borgarhlutans.
 Hausthátíð
 Laugardalsvöllur
Laugardalshöll

Þekkingarstöð, málefni fatlaðra

Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis er þekkingarstöð um málefni fatlaðra. Markmið og hlutverk þjónustumiðstöðvar er að viðhalda og þróa sérþekkingu og nýbreytni í málaflokknum. Þekkingarstöðin hefur einnig það markmið að vera ráðgefandi gagnvart öðrum þjónustumiðstöðvum, einstökum sviðum Reykjavíkurborgar og vera tengiliður við aðrar fagstofnanir og hagsmunasamtök.  Í þekkingarstöðvarteyminu er fagfólk sem hefur víðtæka þekkingu og reynslu af málefnum fatlaðra.

Mikil áhersla er lögð á að þjónustan sé unnin út frá þörfum og markmiðum notandans. Markmið starfsmanna þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis er að taka vel á móti notendum og koma fram við alla af virðingu.

Hjá þekkingarstöð getur þú fengið ýmiskonar þjónustu, og má til dæmis nefna:

  • Ráðgjöf
  • Leiðsögn um þá möguleika sem notanda stendur til boða.
  • Þjónustan er veitt á forsendum notanda og er öllum að kostnaðarlausu.

 

Ef þú þarft á einhverjum upplýsingum að halda skalt þú endilega hafa samband við þjónustumiðstöð í síma 411-1500.

Ef þú vilt koma upplýsingum á framfæri endilega sendu okkur þá póst merktan málefni fatlaðra á laugardalur.haaleiti@reykjavik.is

 

 


Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is