Leikskólar
Sérfræðiþjónusta við leikskóla í Laugardals- og Háaleitishverfi.
Markmið:
Að veita markvissa og heildtæka þjónustu á þverfaglegum grunni til að mæta sérþörfum barna og fjölskyldna þeirra. Þjónustan er veitt á grundvelli þjónustusamnings á milli Mennta- og leikskólasviðs, Velferðarsviðs og Íþrótta- og tómstundasviðs annars vegar og Þjónustu- og rekstarsviðs hins vegar.
Skólateymi:
Á Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis er skólateyminu skipt eftir skólastigum í leikskólateymi og grunnskólateymi. Gætt er þó vandlega að samvinnu og upplýsingaflæði á milli teymana með skörun fundartíma beggja teyma. Hlutverk teymana er að vera vettvangur fyrir faglega umfjöllun um málsmeðferð, auk ákvarðanatöku um hvaða sérfræðingur/ar taki að sér vinnslu erindis.
Tilvísanir til skólateyma berast frá leik- og grunnskólum á þar til gerðum eyðublöðum í samvinnu við og með undirskrift forráðamanns.
Leikskólateymi:
Leikskólateymi er þverfaglegt teymi sem í sitja sálfræðingar, sérkennsluráðgjafar, leikskólaráðgjafi og félagsráðgjafi. Leikskólateymið fundar vikulega á mánudögum.
Helstu verkefni sérfræðinga leikskólateymis eru eftirfarandi:
Sérkennsluráðgjöf og sálfræðiþjónusta
- Sálfræðilegar athuganir á börnum vegna gruns um frávik í þroska
- Ráðgjöf varðandi sérkennslu eða sértæka aðstoð við barn
- Aðstoð með gerð og útfærslu einstaklingsnámskrár
- Regluleg eftirfylgd og endurmat á sérkennslubörnum
- Tilvísanir til annarra greiningaraðila
- Ráðgjöf við foreldra
- Umsjón með skilum á upplýsingum um börn með sérþarfir til grunnskóla
Leikskólaráðgjöf
- Veita ráðgjöf til leikskólastjóra, einstaka starfsfólks, eða hópsins í heild um faglega þætti leikskólastarfsins og forvarnarstarf
- Veitir ráðgjöf vegna foreldrasamstarfs í leikskólum og leiðbeinir vegna mála sem upp kunna að koma á milli foreldra og starfsfólks
- Veita ráðgjöf vegna þróunar- og nýbreytniverkefna
- Miðlar þekkingu og nýjungum á sviði leikskólafræða
- Veita ráðgjöf vegna barna af erlendum uppruna og vegna kennslu í íslensku sem öðru máli
- Veita ráðgjöf við gerð leikskólanámskráa og ársáætlana leikskóla
- Veita ráðgjöf og upplýsingar vegna samstarfs á milli skólastiga
Félagsráðgjöf
- Ráðgjöf við starfsfólk leikskóla
- Fjölskylduráðgjöf
- Veita upplýsingar um félagsleg úrræði fyrir börn og foreldra þeirra
Snemmtæk íhlutun:
Þjónusta við börn með sérþarfir og fjölskyldur þeirra tekur mið af hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar (early intervention). Snemmtæk íhlutun er skilgreind sem þjónusta við börn með sérþarfir undir sex ára aldri sem hefur það að markmiði að draga úr áhrifum þroskavandamála hjá börnum með fötlun eða eru í áhættuhóp varðandi fötlun. Þjónustan felst í markvissri og skipulagðri kennslu/þjálfuní leikskóla sem byggð er á traustum vísindalegum grunni, auk stuðnings við foreldra barns.
Leikfangasafn:
Á þjónustumiðstöðinni er staðsett leikfangasafn sem ætlað er fyrir starfsfólk leikskólanna í Reykjavík. Leikfangasafnið er opið á miðvikudögum og þar er veitt ráðgjöf varðandi leikfangaval. Emilía Rafnsdóttir er umsjónarkona safnsins.
Rekstur leik- og grunnskóla:
Allir borgarreknir leikskólar heyra undir Leikskólasvið og allir borgarreknir grunnskólar heyra undir Menntasvið . Á skrifstofu Mennta- og leikskólasviðs eru: Fagskrifstofur leik- og grunnskóla, fjármálastjórnun, bókhalds- og launaþjónusta leik- og grunnskóla og innheimta leikskólagjalda, starfsmannaþjónusta leik- og grunnskóla, upplýsingatækniþjónusta leik- og grunnskóla og skrifstofa sviðsstjóra.
Við leitumst við að sinna hlutverki okkar af kostgæfni og ef þú hefur fyrirspurnir eða ábendingar um eitthvað sem betur má fara þá sendu okkur línu á helgi.hjartarson@reykjavik.is