Móðurskólar
Það nýmæli var tekið upp í Reykjavík vorið 1998 að stofna móðurskóla fyrir ákveðin svið skólastarfsins. Hlutverk þeirra er að vera frumkvöðull á sínu sviði, veita öðrum grunnskólum í Reykjavík ráðgjöf og standa fyrir fræðslu- og kynningarstarfi um þá sérþekkingu sem hann býr yfir.
Móðurskólar í Reykjavík
Ingunnarskóli og Norðlingaskóli - móðurskólar í uppbyggingu einstaklingsmiðaðs námsmats. Samstarfsverkefni skólanna. Vesturbæjarskóli er móðurskóli verkefnisins Drengir og grunnskólinn.
Styrkir og umsóknir
Móðurskólaverkefnin hafa verið styrkt úr Þróunarsjóði Grunnskóla Reykjavíkur og Menntasviðs. Í ársbyrjun er auglýst eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Sjá styrki og umsóknir.