menntasvid_banner     Mynd eftir nemanda úr Fellaskóla     

Sérkennsla

Í öllum grunnskólum Reykjavíkur stendur börnum til boða aðstoð vegna sértækra námsörðugleika, tilfinningalegra eða félagslegra örðugleika og/eða fötlunar. Allt að fimmtungur nemenda fær sérkennslu af einu eða öðru tagi á hverju skólaári, flestir vegna lestrar-og skriftarörðugleika. Á undanförnum árum hafa grunnskólar Reykjavíkur fengið sérstaka fjárúthlutun vegna barna með fatlanir og miklar sérþarfir í námi, m.a. vegna geðraskana og annarra alvarlegra hegðunarvandamála. Skólastjóri sér um að fylla út umsókn um fjárúthlutun ásamt greiningargögnum og senda til Menntasviðs. Úthlutað er í júní og endurskoðun úthlutunar fer fram í október.

pdfmynd Umsókn - Úthlutun fjármagns til grunnskóla í Reykjavík vegna mikið fatlaðra nemenda og nemenda með alvarlega samskipta- og hegðunarörðugleika eða geðraskanir.

Verkefnastjóri sérkennslu er Ragnheiður Axelsdóttir  og veitir hún nánari upplýsingar um sérúrræði fyrir nemendur með félagslega örðugleika/ og eða fötlun.



Menntasvið og Leikskólasvið
Reykjavíkurborgar
Fríkirkjuvegi 1
Sími: 411 7000
menntasvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðin

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is