Selás-Norðlingaholt - göngubrú.
06.08.2010
Upplestur á frétt 
Selás-Norðlingaholt. Göngubrú.
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024.
Í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, m.s.br., er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024.
Tillagan gerir ráð fyrir gerð nýrrar mislægrar göngutengingar milli Seláshverfis og Norðlingaholts yfir Breiðholtsbraut sem felst í að gert er ráð fyrir nýrri göngubrú yfir Breiðholtsbraut.Með breytingu þessari verður auðveldara fyrir íbúa hverfanna að ferðast milli hverfa auk þess sem umferðaröryggi eykst til muna með tilkomu göngutengingar á þessum stað. Breyting þessi og framkvæmd hennar er unnin í samráði við Vegagerðina.
Nánar um tillögu vísast til kynningargagna
Skoða tillögu (PDF)
Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 6. ágúst 2010 til og með17. september 2010. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 17. september 2010. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 6.ágúst 2010
Skipulagsstjóri Reykjavíkur