Vesturvallareitur, lýsing
26.04.2011
Upplestur á frétt 
Á fundi skipulagsráðs 13. apríl 2011 var lögð fram lýsing skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur dags. 1. apríl 2011 að Vesturvallareit 1.134.5. Skipulagssvæðið markast af Vesturvallagötu, Sólvallagötu. Framnesvegi og Holtsgötu. Einnig var lögð fram húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur dags. í október 2010.
Erindi var samþykkt til kynningar og umsagnar með vísan til 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt var að kynna lýsinguna fyrir hagsmunaðilum á reitnum og til umsagnar Skipulagsstofnunar, Hverfisráðs Vesturbæjar, Borgarminjavarðar og Húsafriðunarnefndar. Lýsingin er meðfylgjandi og verður einnig aðgengileg á vef skipulags- og byggingarsviðs skipbygg.is ásamt húsakönnun.
Skoða lýsingu (PDF)
Húsakönnun (PDF)
Hagsmunaaðilum er bent á að kynna sér lýsingu og senda ábendingar og athugasemdir til skipulagsstjóra eða á netfangið skipulag@reykjavik.is. Kynning verður í gangi til og með 13. maí 2011. Hagsmunaaðilar á Vesturvallareit eru hér með boðaðir á fund í Borgartúni 12-14. 2. hæð austur, fundarherbergi Dalsmynni, miðvikudaginn 10. maí nk. kl. 15:00. Boða þarf komu sína í þjónustuveri Reykjavíkurborgar á 1. hæð hússins þegar komið er á fundinn.
F.h. skipulags- og byggingarsviðs
Margrét Þormar