Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Yfirlit um byggingarframkvæmdir í Reykjavík 2010

26.05.2011

Upplestur á frétt 

Skoða má ársskýrsluna hér.

Alls voru 309 íbúðir teknar í notkun á árinu 2010, þar af 257 íbúðir í fjölbýlishúsi úr steinsteypu, 45 íbúðir í einbýlis-, tvíbýlis- eða raðhús úr steinsteypu og 7 íbúðir úr timbri. Alls er um að ræða rúmlega 42.000 fm. úr steinsteypu fyrir árið 2010, samanborið við 19.100 fm. árið 2009 og 46.700 fm. árið 2008. Meðaltalið á tímabilinu 1972-2010 fyrir fullgerðar íbúðir (teknar í notkun) eru 652 íbúðir.

Samtals byggingarmagn á árinu 2010 var 143.274 fm. úr öllum byggingarefnum (steinsteypu, timbri og stál) fyrir allar tegundir af húsnæði (íbúðir, stofnanir, verslunar- og skrifstofuhús, iðnarðarhús, vörugeymslur o.fl.) samanborið við 135.314 fm. fyrir árið 2009 og 239.970 fm. árið 2008. Á árinu 2010 var mest byggt úr steinsteypu þ.e. 94.417 fm. miðað við 47.435 úr stáli og 1.422 fm. úr timbri.

Sem fyrr segir þá voru fullgerðar íbúðir (teknar í notkun) alls 309 á árinu 2010, en einungis var hafin smíði á 14 nýjum íbúðum á árinu 2010 og er það umtalsverð lækkun miðað við t.d. 247 á árinu 2009 og 206 á árinu 2008. Árið 2005 var t.a.m. hafin smíði á 1257 nýjum íbúðum og meðaltalið á tímabilinu 1972-2010 eru 648 íbúðir. Einnig þá má nefna að alls eru 718 íbúðir í smíðum árið 2010, þ.e. 382 fokheldar íbúðir og 336 íbúðir sem eru ekki orðnar fokheldar.