Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Sogamýri, lýsing vegna deiliskipulags

27.05.2011

Upplestur á frétt 

Lýsing fyrir Sogamýri er leiðbeinandi við gerð deiliskipulags sem mun fjalla um uppbyggingu og landnotkun á umræddu svæði. Um er að ræða borgarland sem samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 er skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota. Áður en heimilt er að auglýsa tillögu að deiliskipulagi þarf með vísan til 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja fram lýsingu um hvernig staðið verður að skipulagsgerðinni.

Skipulagssvæðið er um 0,93 ha. og afmarkast af Suðurlandsbraut til norðurs, núverandi stíg í Sogamýri til vesturs, Miklubraut til suðurs og afrein frá Sæbraut inn á Miklubraut til austurs. Markmið með væntanlegu deiliskipulagi er að endurskoða gildandi skipulag á svæðinu og leggja til staðsetningu lóðar fyrir tilbeiðsluhús með tilheyrandi aðkomu, bílastæðum og byggingareit. Einnig skal tryggja áfram góðar leiðir gangandi og hjólandi um svæðið, viðhalda grænu yfirbragði svæðisins og setja sérskilmála um fyrirmyndar frágang lóðar. Hámarks lóðarstærð skal vera 2.000 m² og hámarks byggingarmagn 400 m². Deiliskipulag svæðisins skal samræmast stefnumörkun borgaryfirvalda eins og hún birtist í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 ásamt þeim meginforsendum sem fram hafa komið við endurskoðun á því.

Skoða lýsingu (PDF)

Lýsing þessi hefur verið lögð fyrir skipulagsráð Reykjavíkur til kynningar og samþykktar og send hagsmunaaðilum og Skipulagsstofnun til yfirlestrar og athugasemda. Þegar tillaga að deiliskipulagi liggur fyrir mun hún vera kynnt hagsmunaaðilum á vinnslustigi áður en hún verður kynnt fyrir almenningi með opinberri auglýsingu og opnum kynningarfundi.

Lýsingin verður aðgengileg á vef Skipulags- og byggingarsviðs, www.skipbygg.is, og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér lýsinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is.

Skipulagsstjórinn í Reykjavík