Norðurströndin, Geldinganes að Blikastaðakró
24.06.2011
Upplestur á frétt 
Lýsing fyrir Norðurströndina er hluti forsendna við gerð deiliskipulags sem mun fjalla um framtíðarskipulag Norðurstrandarinnar og er tilgangur lýsingarinnar að vera leiðbeinandi við gerð deiliskipulagsins. Svæðið er samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 skilgreint sem opið svæði til sérstakra nota og liggur stofnstígur meðfram allri ströndinni og skal deiliskipulag vera í samræmi við stefnumörkun borgaryfirvalda eins og hún birtist í gildandi Aðalskipulagi. Áður en heimilt er að auglýsa tillögu að deiliskipulagi þarf með vísan til 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að leggja fram lýsingu um hvernig staðið verður að skipulagsgerðinni. Skipulagssvæðið er rúmir 40 hektarar, frekar aflangt svæði meðfram ströndinni. Geldinganesið er ekki hluti af skipulagssvæðinu en hluti af eiðinu út í Geldinganes er hins vegar innan afmörkunar skipulagssvæðisins. Ströndin frá Blikastaðakró að odda Geldinganess er að mestu ósnortin og hefur svæðið mikið verndargildi vegna náttúru og fuglalífs og lífríkar fjörur einkenna svæðið. Öll strandlínan við norðurströndina er skilgreind sem hverfisverndarsvæði.
Skoða lýsingu (PDF)
Lýsing þessi hefur verið lögð fyrir skipulagsráð Reykjavíkur til kynningar og samþykktar og send hagsmunaaðilum og Skipulagsstofnun til yfirlestrar og athugasemda. Þegar tillaga að deiliskipulagi liggur fyrir mun hún vera kynnt hagsmunaaðilum á vinnslustigi áður en hún verður kynnt fyrir almenningi með opinberri auglýsingu og opnum kynningarfundi. Lýsingin verður aðgengileg á vef Skipulags- og byggingarsviðs, www.skipbygg.is, og eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér lýsinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri, skriflega eða á netfangið skipulag@reykjavik.is.
Skipulagsstjórinn í Reykjavík