Leit


Netspjall

Hér er hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Immigrants
  • Polska
  • English

Reglur og leiðbeiningar um útiveitingar í Reykjavík

05.07.2011

Upplestur á frétt 

Á undanförnum árum hefur starfsemi veitingahúsa í auknum mæli flætt inn á borgarlandið og myndað skemmtilega vídd í mannlífinu. Til að hvetja til enn frekari útiveitinga hefur Reykjavíkurborg mótað ramma um þær, þar sem veitingamenn fá nokkuð frjálsar hendur til að útfæra útiaðstöðu við sinn veitingastað. Hins vegar þarf veitingaaðili ávallt að hafa fyrir hendi rekstrarleyfi til útiveitinga sem lögreglan veitir.

Eitt af markmiðum með reglum um útiveitingar er að skapa heildarmynd af Reykjavík sem tekur vel á móti gestum og gangandi og stuðlar um leið að því að hver og einn veitingaaðili geti fundið lausn til útiveitinga sem honum hentar. Með útgáfu reglna og leiðbeininga um útiveitingar er reynt að styðja við veitingaaðila við að halda áfram að taka þátt í að skapa fjölbreytt, lifandi og snyrtileg almenningsrými sem allir borgarbúar geti notið saman.

Skoða reglurnar (PDF)

Í reglunum eru gefnar leiðbeiningar og tekið á atriðum eins og opnunartíma, umgengni og ásýnd, aðgengi, hljóð og lykt, skilrúm og skjól,  merkingum, borðum og stólum o.fl. Reglurnar hafa verið samþykktar í Skipulagsráði og voru samþykktar í Borgarráði þann 23. júní sl.