Fegrunarviðurkenningar 2011
19.08.2011
Upplestur á frétt 
Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar árið 2011 hljóta fimm lóðir og þrjú hús. Á afmæli Reykjavíkurborgar 18. ágúst, eru árlega veittar viðurkenningar fyrir endurbætur á eldri húsum og fallegar stofnana-, fyrirtækja- og fjölbýlishúsalóðir. Að þessu sinni hljóta fimm lóðir og þrjú hús viðurkenningu.
Viðurkenning fyrir lóðir:
Laugarnesvegur 87-89, Dvergabakki 22-36, Sléttuvegur 15-17. Suðurlandsbraut 56 og Dunhagi 7, (Endurmenntun HÍ).
Viðurkenning fyrir hús:
Garðastræti 44, Laufásvegur 10 og Þingholtsstræti 17.
Skipulagsráð Reykjavíkur veitir viðurkenningarnar eftir tilnefningar frá vinnuhópum sem í sátu: Vegna viðurkenningar fyrir lóðir fjölbýlishúsa og fyrirtækja/stofnana: Björn Ingi Edvardsson, landslagsarkitekt hjá embætti skipulagsstjóra og Valný Aðalsteinsdóttir verkefnisstjóri á Skipulags- og byggingarsviði. Vegna viðurkenningar vegna endurbóta á eldri húsum: Helga Maureen Gylfadóttir, safnvörður, Minjasafni Reykjavíkur og Margrét Þormar, arkitekt hjá embætti skipulagsstjóra.
Nánari upplýsingar og rökstuðningur fyrir viðurkenningunum má sjá í meðfylgjandi gögnum.
Rökstuðningur vegna viðurkenninga fyrir lóðir hér. (PDF 1,23 MB)
Rökstuðningur vegna viðurkenninga fyrir hús hér